|
Shape - Áskrift að hollum og bragðgóðum mat |
|
Gunnar Már heilusgúrú, einkaþjálfari og næringarráðgjafi rekur netverslunina shape.is. Á Shape er hægt að kaupa áskrift að hollum og bragðgóðum mat sem hjálpar fólki að léttast og hefur þjónustan notið mikilla vinsælda.
Gunnar notaði áður Outlook og Gmail til þess að halda utanum póstlistana sína en færði sig yfir í frettabref.is til þess að spara tíma og einfalda umsjón með póstlistunum.
Við bjóðum Gunnar velkominn í hóp ánægðra viðskiptavina frettabref.is.
|
|
|
ÍMARK - Félag íslensks markaðsfólks |
|
ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks er félag einstaklinga sem hafa áhuga á og/eða starfa við markaðsmál. Tilgangur félagsins er m.a. að auka veg og virðingu markaðsmála hérlendis og stuðla að auknum skilningi á mikilvægi þeirra.
Fyrirtækið notaði áður póstlistakerfi sem fylgdi vefumsjónarkerfinu en færðu sig yfir í frettabref.is og hafa nú mun meiri stjórn og yfirsýn á öllum útsendum fréttabréfum.
Við bjóðum ÍMARK velkomið í hóp ánægðra viðskiptavina frettabref.is.
|
|
|
Tanni ehf - Auglýsinga- og gjafavörur |
|
Tanni ehf. sérhæfir sig á fyrirtækjamarkaði sem heildsölu og þjónustufyrirtæki á sviði auglýsingavara og vinnufatnaðar. Fyrirtækið notaði áður Excel skjöl til þess að halda utan um póstlista sína en hefur nú "importað" öllum póstlistum sínum inn í frettabref.is sem mun auðvelda þeim allt skipulag og stjórnun útsendinga rafrænna skjala og kynningarefnis til viðskiptavina sinna.
Við bjóðum fyrirtækið velkomið í hóp ánægðra viðskiptavina frettabref.is.
|
|
|
Með því að versla hjá Stórkaupi spara fyrirtæki tíma og fyrirhöfn enda þurfa þau þá ekki að eiga við marga birgja ef þau gera heildar innkaupin hjá þeim. Stórkaup er með aðgang að stærsta vöruhúsi landsins og með samninga við allar helstu heildsölur landsins.
Fyrirtækið þarf að vera í góðu sambandi við viðskiptavini sína, birgja, heildsölur o.fl. og mun framvegis nota frettabref.is til þess að stýra og stjórna rafrænum fjöldasendingum til þessara aðila. Við bjóðum fyrirtækið velkomið í hóp ánægðra viðskiptavina.
|
|
|
Hagsmunasamtök Heimilanna |
|
Hagsmunasamtök Heimilanna (HH) eru frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.
Við styrkjum samtökin svo þau geti haldið úti öflugri miðlun upplýsinga samfélaginu og þjóðinni til heilla. HH þarf að vera í góðu sambandi við félagsmenn, fjölmiðla, þingmenn, ráðherra og þá sem koma að ákvarðanatöku sem varða hagsmunamál heimilanna. HH nota frettabref.is til þess að stýra og stjórna rafrænum fjöldasendingum til þessara aðila.
|
|
|
Online.is - Markaðssetning á netinu |
|
Nýlega kom út áhugaverð íslensk bók um Markaðssetning á netinu og er ætluð markaðsfólki sem vill auka þekkingu sína á netinu og færni í að nota það sér til hagsbóta. Í bókinni er kaflinn "Tölvupóstar sem samskiptatæki" og fjallar m.a. um notkun tölvupósta í rafrænni markaðssetningu.
Það er ánægjulegt frá því að segja að höfundar bókarinnar Guðmundur Arnar Guðmundsson, hagfræðingur sem fer fyrir markaðsstarfi íslenska sölusvæðis Icelandair og Kristján Már Hauksson stofnandi Nordic eMarketing mæla með frettabref.is og nota vefþjónustuna bæði í sýnikennslu á námskeiðum sínum og til rafrænna fjöldasendinga á þátttakendur námskeiðanna.
|
|
|
Ferðamálastofa - landkynning og markaðsmál |
|
Fe rðamálastofa hefur samið um að nota frettabref.is til þess að halda utanum póstlista sína og stjórna rafrænum sendingum fréttabréfa og annars kynningarefnis bæði innanlands og erlendis.
Landkynning og markaðsmál eru eitt af verkefnum Ferðamálastofu og heyra þau undir markaðssvið stofnunarinnar. Meðal helstu verkefna má nefna markaðsáætlanir, ferðasýningar, kynningarefni, samskipti og móttaka fjölmiðlafólks erlendis frá og ýmsar markaðsaðgerðir. Undir sviðið heyra einnig skrifstofur Ferðamálastofu erlendis sem eru í New York, Frankfurt og Kaupmannahöfn.
|
|
|
Miðlun - markviss viðskiptatengsl |
|
Það er ánægjulegt að segja frá því að Miðlun ehf. hefur gert samning um að nota þjónustu frettabref.is til þess að halda utan um rafrænar sendingar fréttabréfa og annarra sendinga með tölvupósti fyrir viðskiptavini sína.
Miðlun er framsækið og skapandi fyrirtæki sem leitar stöðugt nýrra lausna og fyrir viðskiptavini sína þannig að þeir njóti góðs af.
|
|
|
Sendu glæsileg fréttabréf með tölvupósti |
|
Fjöldasendingar með tölvupósti er ódýrasta og árangursríkasta leiðin til að koma mikilvægum upplýsingum til núverandi og tilvonandi viðskiptavina. Þú hefur fullkomna stjórn á öllum útsendingum fréttabréfa, tilkynninga, kannana og annars kynningarefnis.
|
|
Nánar...
|
|
|
Rafræn markaðssetning með tölvupósti |
|
Ef fyrirtækjavefur býður ekki upp á þann möguleika að notendur geti skráð sig á póstlista þá nýtir hann ekki nema lítið brot af sölu- og tekjumöguleikum vefsins.
Flestir notendur sem heimsækja vef fyrirtækja koma einfaldlega og fara án þess að það heyrist nokkurntíman frá þeim. Skráningarform á póstlista hjálpar fyrirtækinu að safna nöfnum og netföngum þeirra sem heimsækja vefinn og hafa áhuga á vörum og þjónustu fyrirtækisins. Það gerir fyrirtækinu kleift að senda áskrifendum póstlistans tilkynningar, fréttabréf eða annað kynningarefni í þeim tilgangi að byggja upp framtíðar viðskipti.
Langflestir þeirra sem kaupa á netinu kaupa yfirleitt ekki í fyrsta skipti sem þeir heimsækja tiltekinn vef. Kannanir sýna að flestir þurfi a.m.k. sjö til átta snertingar við tiltekið fyrirtæki áður en þeir eru tilbúnir að eiga viðskipti við það. Góður póstlisti gefur fyrirtækinu tækifæri til að vera í reglulegu sambandi við áskrifendur hans til að minnka kauptregðu og auka viðskiptatryggð. |
|
Nánar...
|
|
|