Heim

Fréttabréf

frettabref.is
Sendu glæsileg fréttabréf með tölvupósti

Fjöldasendingar með tölvupósti er ódýrasta og árangursríkasta leiðin til að koma mikilvægum upplýsingum til núverandi og tilvonandi viðskiptavina. Þú hefur fullkomna stjórn á öllum útsendingum fréttabréfa, tilkynninga, kannana og annars kynningarefnis.

Nánar...
 
Rafræn markaðssetning með tölvupósti

Ef fyrirtækjavefur býður ekki upp á þann möguleika að notendur geti skráð sig á póstlista þá nýtir hann ekki nema lítið brot af sölu- og tekjumöguleikum vefsins.

Flestir notendur sem heimsækja vef fyrirtækja koma einfaldlega og fara án þess að það heyrist nokkurntíman frá þeim. Skráningarform á póstlista hjálpar fyrirtækinu að safna nöfnum og netföngum þeirra sem heimsækja vefinn og hafa áhuga á vörum og þjónustu fyrirtækisins. Það gerir fyrirtækinu kleift að senda áskrifendum póstlistans tilkynningar, fréttabréf eða annað kynningarefni í þeim tilgangi að byggja upp framtíðar viðskipti.

Langflestir þeirra sem kaupa á netinu kaupa yfirleitt ekki í fyrsta skipti sem þeir heimsækja tiltekinn vef. Kannanir sýna að flestir þurfi a.m.k. sjö til átta snertingar við tiltekið fyrirtæki áður en þeir eru tilbúnir að eiga viðskipti við það. Góður póstlisti gefur fyrirtækinu tækifæri til að vera í reglulegu sambandi við áskrifendur hans til að minnka kauptregðu og auka viðskiptatryggð.

Nánar...
 

Fréttabréf.is
Egilsmóa 4
270 Mosfellsbær
Sími: 691 2225
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.


Viðskiptavinir