|
Sendu glæsileg fréttabréf með tölvupósti |
|
|
|
|
Fjöldasendingar með tölvupósti er ódýrasta og árangursríkasta leiðin til að koma mikilvægum upplýsingum til núverandi og tilvonandi viðskiptavina. Þú hefur fullkomna stjórn á öllum útsendingum fréttabréfa, tilkynninga, kannana og annars kynningarefnis.
Helstu kostir frettabref.is
- Enginn aukahugbúnaður
Uppsetning á sérstökum hugbúnaði er óþörf þar sem kerfið er miðlægt og öllum aðgerðum stjórnað í vefskoðara hvort sem þú ert í vinnunni, heima eða erlendis. Þú þarft aðeins Internetsamband.
- Einfalt og fljótlegt í uppsetningu
Það tekur aðeins nokkrar klukkustundir að setja upp fréttabréfakerfið, stilla það fyrir fyrirtækið og gefa lykil starfsmönnum aðgang að kerfinu. Kerfið inniheldur fjölmörg tilbúin sniðmát af fréttabréfum en einnig er auðvelt að hanna ný útlit á fréttabréf sem hægt er að hafa á lager og nota í útsendingar. Fréttabréf geta innihaldið breytur þannig að öll umgjörðin haldi sér á meðan hægt er að setja texta, myndir og annað inn í breyturnar.
- Þægilegt og öruggt í útsendingum
Hægt er að skilgreina útsendingar á marga mismunandi vegu s.s. að senda fréttabréf á tiltekinn póstlista, lesendahóp, aldurshóp, landsvæði, póstnúmer eða annað. Hægt er að ákveða tímasetningu útsendingar þannig að fréttabréfið fari strax eða sjálfkrafa á tiltekinni dagsetningu í framtíðinni s.s. hvern mánudag eða á föstudögum kl. 8:00.
- Allir notendur fá tölvupóstinn
Ruslpóstur er vaxandi vandamál á Netinu og hafa flest þjónustufyrirtæki sett upp síur sem takmarka móttöku fjöldasendinga. Frettabref.is er í nánu samstarfi við allar helstu póstveitur landsins og sér til þess að tölvupóstar skili sér til viðtakenda þrátt fyrir mikið magn. Þetta tryggir að allir notendur fá fréttabréfið sitt.
- Sjálvirk meðhöndlun villumeldinga
Þegar fréttabréf er sent á hundruðir eða þúsundir áskrifenda þá er ekkert eins gremjulegt og að sjá innboxið fyllast af tugum eða hundruðum tölvupósta um villumeldingar sem ekki skiluðu sér. Kerfið leysir þetta vandamál algjörlega með því að flokka og meðhöndla villumeldingapóst sjálfkrafa. Þú getur ákvarðað stillingar yfir hvað kerfið gerir við þessi netföng s.s. taka þau út úr aðallistanum, setja í geymslu eða annað.
- Yfirgripsmikil tölfræði
Stjórnendur fá mjög góða yfirsýn yfir allar herferðir og útsendingar og sjá m.a. nákvæma tölfræði yfir opnunartíðni tölvupósta, hver opnaði tölvupóst, hver lengi hann var opinn, hver smellti á hvaða tengil, klukkan hvað það gerðist, hve mörg netföng voru óvirk o.fl. Allar þessar upplýsingar aðgengilegar í rauntíma og/eða í ítarlegum skýrslum með viðeigandi súluritum- og kökuritum sem hægt er að prenta út og nota á fundum.
|