Fréttabréf

Áhugaverðir póstlistar

Markaðsskrifstofa Ferðamála á Norðurlandi

Netfang
Heimasíða
Smelltu hér til að skoða heimasíðuna
Norðurland er stór og hrífandi landshluti og þar má finna allt sem gerir Ísland að eftirsóttum stað: Menningu og blómlegt mannlíf, óendanlega möguleika til útivistar og afþreyingar, hrífandi náttúru til sjávar og sveita og fleiri náttúruperlur en víðast er að finna. Á vorin bræðir sólin snjóinn og landið klæðist grænum sumarskrúða sínum. Þá er tími útiveru, ferðalaga og endurnæringar. Sumir skreppa í gönguferðir, sund eða golf. Aðrir velja veiðar, útreiðartúra eða ævintýralegar siglingar á sjó, ám eða vötnum. Um allt Norðurland geta ferðamenn fundið eitthvað við sitt hæfi. Boðið er upp á ferðir milli bæja, út í eyjar og inn á hálendið til að skoða fjöll, hveri, fossa, jökulár, eldgíga, sérkennilegt landslag og aðrar jarðmyndanir sem móðir náttúra hefur skapað. Ferðir um hálendið eru ógleymanlegar ævintýraferðir. Haustið býður upp á fallega liti og veturnir hafa líka sinn sjarma. Þá eru vetraríþróttir alls ráðandi, norðurljós iða á köldum himni og jafnvel myrkrið getur veitt mönnum innblástur og andagift.

Prufuaðgangur

Fáðu ókeypis prufuaðgang í 3 vikur.

Smelltu hér til að sækja um.

20 bækur gefins!

Taktu þátt í léttri könnun og fáðu gefins yfir 20 stafrænar bækur um rafræna markaðssetningu.

Sjá bókalista og könnun.

Fréttabréf.is
Egilsmóa 4
270 Mosfellsbær
Sími: 691 2225
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.