Heim arrow Virkni

Fréttabréf

Virkni og uppbygging PDF Print Senda

Uppsetning og uppfærslur

  • Auðveld uppsetning
    Það tekur aðeins nokkrar mínútur að setja upp fréttabréfakerfið, stilla það og gefa notendum aðgang.
  • Auðveldar uppfærslur
    Þar sem kerfið er keyrt á einum vefþjón þá gerast allar uppfærslur um leið og nýjar og endurbættar útgáfur eru gefnar út og það tekur aðeins nokkrar mínútur í hvert sinn og þú verður ekkert var við það.

Stjórnun og aðgangur

  • Aðgangur kerfisstjóra
    Kerfisstjóri hefur fullan aðgang að öllum virknimöguleikum kerfisins, stillingum, útsendingum, hönnun fréttabréfa, tölfræði, skýrslugerð o.fl.
  • Aðgangur notenda
    Notendur hafa aðgang að sínu svæði þar sem þeir geta breytt og uppfært persónuupplýsingar sínar, stillingar og annað.

Póstlistar

  • Tvöföld staðfesting á skráningu og afskráningu
    Þú getur stillt kerfið þannig að notendur þurfi að staðfesta áskriftina. Þetta kemur í veg fyrir að fólk skrái aðra og tryggir að viðkomandi hafi virkan áhuga á að vera á póstlistanum. Það sama gildir með afskráningu.
  • Mismunandi stillingar fyrir skráningu og afskráningu
    Þú getur stillt mismunandi skráningar og afskráningarferli fyrir hvern póstlista. Ef notandi afskráir sig þá getur kerfið skráð hann sjálfkrafa á annan póstlista með öðrum forsendum.
  • Yfirlit yfir allar skráningar og afskráningar
    Þú getur séð daglegar færslur yfir allar skráningar og afskráningar í skýrum og fallegum kökuritum.
  • Sjálfvirkur raðpóstur sem sýnir opnaða tölvupósta og smelli
    Kerfið skráir bæði opnanir tölvupósta og smelli á tengla í sjálfvirkum raðpóstum og staðfestingartölvupóstum. Þú getur síðan prentað út nákvæmar skýrslur yfir tölfræðina. 
  • Sjálfvirkir raðpóstar fyrir ósvöruðum staðfestingarpóstum
    Kerfið sendir sjálfvirka raðpósta eftir tiltekinn fjölda daga með áminningum til notenda sem eiga eftir að staðfesta skráningu eða afskráningu.
  • Aukareitir með mismunandi virknimöguleikum
    Þú getur búið til ótakmarkaðan fjölda aukareita fyrir mismunandi póstlista eða lesendahópa og stillt skilyrði um útfyllingu þeirra.
  • Aukareitir með skilyrðum
    Þú getur sett nokkur mismunandi skilyrði á aukareitina eða sér skilyrði fyrir hvern reit. Með þessu móti getur þú séð til þess að notandinn setji inn réttar upplýsingar s.s. símanúmer.

Notendur og lesendahópar

  • Aukareitir fyrir nánari upplýsingar
    Þú getur tekið við ótakmörkuðu magni aukaupplýsinga um notendur sem skrá sig s.s. aldur, kyn, heimilisfang, áhugamál o.s.frv. Þú getur síðan notað þessar upplýsingar til að gera fréttabréfin persónulegri og hnitmiðaðri.
  • Bannlistar og svartlistar
    Kerfið getur sjálfkrafa sett þá sem afskrá sig á svartlista fyrir tiltekinn póstlista eða á svartlista sem þýðir að þeir fá aldrei tölvupóst frá neinum póstlista.
  • Fjölda afskráning
    Kerfið gerir þér kleift að afskrá eða fjarlægja marga notendur í einu á auðveldan hátt.
  • Hreinsun netfanga og notenda
    Þú getur hreinsað netföng og notendur af póstlistum út frá mörgum mismunandi forsendum.
  • Sjálfvirk hreinsun óvirkra netfanga
    Þú getur hreinsað út öll óvirk netföng á auðveldan hátt eða látið kerfið gera það sjálfkrafa fyrir þig.
  • Notendasvæði
    Þú getur gefið notendum aðgang að sínu svæði þar sem þeir geta uppfært upplýsingar um sig, prófíla, netföng, áhugamál, áskrift að póstlistum o.s.frv.

Innflutningur og útflutningur á gögnum (Import – Export)

  • Innflutningur á notendaupplýsingum
    Þú getur auðveldlega flutt inn upplýsingar um notendur s.s. nafn, netfang, fæðingardag o.fl. Hægt er að flytja upplýsingar úr Excel CSV skrám og öðrum MySQL gagnagrunnum, en einnig er hægt að afrita og líma (copy  paste) netföng úr tölvupóstkerfinu þínu.
  • Útflutningur á notendaupplýsingum
    Þú getur flutt út notendur yfir í Excel CSV og XML skrár.
  • Útflutningur á niðurstöðum herferða
    Þú getur flutt út niðurstöður og tölfræði úr herferðum s.s. opnunartíðni, tenglasmelli, tölvupósta sem skiluðu sér ekki og óvirk netföng yfir í Excel CSV skrár.

Samþætting við eigin vefsvæði

  • Auðvelt að samtengja við vefsvæði
    Með sjálfvirku hjálparkerfi getur þú auðveldlega keyrt út HTML kóða fyrir skráningarform og afskráningarform sem hægt er að setja á hvaða vefsvæði sem er. Þú getur keyrt út ótakmarkaðan fjölda forma fyrir eins mörg vefsvæði og þú vilt. Skráningar fara sjálfkrafa inn á réttan póstlista.
  • Sérhannaðar “Þakka þér fyrir” síður
    Þú getur sérhannað þínar eigin “Þakka þér fyrir” síður sem koma upp eftir að notandi hefur skráð eða afskráð sig.

Tölfræði og skýrslu

  • Opnunartíðni tölvupósta
    Þú getur séð bæði hve margir notendur opna fréttabréfið og hvenær þeir opna það. Þú getur einnig séð þessar upplýsingar í gagnvirku  kökuriti.
  • Villumeldingapóstur
    Þú getur séð hve margir tölvupóstar komust ekki til skila til notenda (bounced) og hvort það voru harðar eða mjúkar villumeldiungar. Harðar villumeldingar eru óvirk eða ónýt netföng, mjúkar villumeldingar geta verið yfirfull pósthólf, póstþjónavandamál eða aðrar tímabundnar villumeldingar.  Þú getur einnig séð þessar upplýsingar í gagnvirku kökuriti.
  • Tölfræði í vönduðu grafísku viðmóti
    Tölfræðin í skýrslunum er einnig sett upp í skemmtilegu grafísku viðmóti s.s. kökuritum.
  • Rauntíma SPAM tékkun og ráðgjöf til þess að auka skil á pósti
    Kerfið tékkar hvort fréttabréfið kemst í gegnum SPAM síur á vefþjónum viðtakenda og gefur þér góð ráð til þess að tryggja að pósturinn skili sér til lesenda. Tölvupóstar sem koma frá frettabref.is eru einnig hvítlistaðir hjá öllum helstu vefþjónum á Íslandi og fara sjálfkrafa framhjá öllum SPAM síum.
  • Bandvíddartékkun á herferðum
    Þú getur látið kerfið kanna hve mikla bandvídd tiltekin herferð notar í útsendingu áður en þú sendir fréttabréfið.
  • Opnunartíðni tölvupósta og tölfræði
    Kerfið gefur þér mjög nákvæma tölfræði um opnunartíðni tölvupósta, hver opnaði tölvupóstinn og hver lengi hann var opinn.
  • Tenglasmellitíðni og tölfræði
    Kerfið gefur þér einnig nákvæma tölfræði yfir tenglasmellitíðni þar sem þú getur séð hvaða notendur smelltu á hvaða tengla og hvenær þeir gerðu það.
  • Tölfræði yfir áframsendingar
    Þú getur sett “Senda vini” tengil í fréttabréfið svo notendur geti áframsent það á vini sína og fengið tölfræði yfir þessar áframsendingar.
  • Meðhöndlun og flokkun villumeldingapósti
    Kerfið flokkar villumeldingapóst sjálfkrafa og merkir póstinn sem harðan eða mjúkan villumeldingapóst. Þú getur ákvarðað stillingarnar og hvort og hvenær kerfið merkir póstana og hvað það gerir við þá s.s., sjálfvirka hreinsun harðra villumeldinga, eða breytingu á stöðu netfangsins.
  • Nákvæm tölfræði yfir villumeldingapóst
    Þú getur skoðað tölfræði yfir villumeldingapóst og séð stöðuna í gagnvirkum kökuritum.  Þú getur líka flutt villumeldingapóstinn út úr kerfinu eða inn í aðra póstlista.
  • Samanburður af árangri herferða
    Þú getur borið saman nokkrar mismunandi herferðir út frá skilum, opnunartíðni, tenglasmellitíðni o.fl.
  • Sérskrifaðar skýrslur
    Þú getur keyrt út mismunandi skýrslur út frá mismunandi forsendum s.s. aldri, staðsetningu eða hvaða upplýsingum sem finnast um notendur á póstlistanum.
  • Tölfræði yfir lén í tölvupósti
    Skoðaðu tölfræði yfir hlutfall netfanga út frá ákveðnum lénum í póstlistanum. Með því móti getur þú gert póstlistann skilvirkari og aukið opnunar- og smellitíðni fréttabréfanna.

Uppsetning og stjórnun herferða

  • Auðveld uppsetning herferða
    Uppsetning rafrænna herferða er mjög auðveld. Kerfið leiðir þig í gegnum ferlið, skref fyrir skref, og hjálpar þér að stilla herferðirnar þannig að þær skili hámarks árangri.
  • Margir póstlistar í sömu herferð
    Þú getur sent fréttabréfið á marga póstlista á sama tíma.
  • Skilyrtar herferðir og útsendingar
    Kerfið gerir þér kleift að skilgreina útsendingar á marga mismunandi vegu. Með þessu móti getur þú sent fréttabréf á allan póstlistann eða skilgreint lesendahópinn s.s. vissa aldurshópa, tiltekin lén, landsvæði, póstnúmer eða annað.
  • Tímasetning útsendinga
    Þú getur ákveðið tímasetningu herferða þannig að þær fari strax eða á tiltekinni dagsetningu í framtíðinni s.s. hvern mánudag eða á föstudögum kl. 8:00.
  • WYSIWYG ritill
    Þú getur auðveldlega hannað fréttabréfin í kerfinu með öflugum ritli.
  • Tilkynningar um lok útsendinga með tölvupósti
    Kerfið getur sent þé tilkynningu í tölvupósti þegar það er búið að senda öll fréttabréfin.
  • Mismunandi frá/senda svar til netföng
    Þú getur sett inn og valið netföng fyrir from, send-to og reply-to reitina.
  • Mismunandi efni (Subject) á tölvupóstum
    Þú getur sett inn nokkra mismunandi texta í Subject reitinn og látið kerfið velja þá af handahófi í útsendingunni.
  • Mismunandi útsendingarveitur
    Þú getur stillt sendingarmöguleika og notað mismunandi sendingarveitur fyrir útsendingar. (SMTP vefþjóna, eigin vefþjóna o.s.frv.) og hverja herferð.
  • Forskoða fréttabréf
    Þú getur forskoðað fréttabréfið í vefskoðara eða tölvupóstforriti áður en þú sendir það út.
  • Innsetning mynda
    Þú getur látið kerfið ná í og setja myndir inn í fréttabréfið þannig að þær birtist þó notandinn hafi ekki þá stillingu í tölvupóstkerfinu sínu. Við mælum þó með því að myndirnar séu á vefþjónum okkar til að spara bandvídd og stærð póstsins.
  • Viðhengi með tölvupósti
    Þú getir hengt ótakmarkað magn skjala við fréttabréfin eða sjálfvirka svarpósta.

Útsending herferða

  • Ítarlegar skýrslur yfir útsendingar
    Kerfið býður upp á ítarlega skýrslugerð. Þú getur fylgst með og skráð aðgerðir sem notendur framkvæma í fréttabréfinu og skoðað niðurstöðurnar í grafískum línu- og kökuritum.
  • Rauntíma eftirlit með árangri útsendinga
    Þú getur fylgst með árangri útsendinga og séð skil á tölvupóstum, opnunartíðni, tenglasmelli, villumeldingar og afskráningar í rauntíma.
  • Stoppa og hefja útsendingar í miðju kafi
    Þú getur stoppað útsendingar tiltekinnar herferðar hvenær sem er og sett hana aftur í gang hvenær sem er.
  • Sjálfvirk gangsetning útsendinga
    Ef útsendingar stoppa ef einhverjum orsökum s.s. ef slökkt er á póstþjón án þinnar vitundar eða annað þá sér kerfið sjálft um að gangsetja herferðina aftur og halda útsendingum áfram þar sem frá var horfið.

Persónulegir tölvupóstar

  • Tölvupóstar með persónuupplýsingum
    Þú getur gert tölvupóstana mjög persónulega með því að kalla á upplýsingar úr persónuupplýsingum notenda. Þú getur látið kerfið kalla á og setja inn í fréttabréfið hvaða upplýsingar sem finnast í notendaprófílum. Þetta eykur líkurnar á að fréttabréfið skili árangri.
  • Skilyrtar persónuupplýsingar
    Þú getur látið kerfið setja inn aðrar upplýsingar ef þær finnast ekki í prófíl viðkomandi notanda. Sem dæmi getur þú látið kerfið ávarpa notandann með Kæri Nafn notanda, eða Kæra Nafn notanda, eftir því hvort viðkomandi er skráður sem karl eða kona.
  • Utanaðkomandi efni sett inn í tölvupósta
    Þú getur látið kerfið ná í utanaðkomandi efni og setja það inn í fréttabréfið á tiltekinn stað. Sem dæmi gætir þú látið kerfið setja inn vörumerki bíltegundar ef það er skilgreint í prófíl viðkomandi notanda.

Hönnun fréttabréfa

  • Hönnun sniðmáta fyrir fréttabréf
    Þú getur auðveldlega hannað og vistað ný útlit á fréttabréf sem hægt er að hafa á lager og nota í útsendingar. Þú getur sett breytur inn í fréttabréfið þannig að öll umgjörðin heldur sér á meðan þú setur texta, myndir og annað inn í breyturnar.

Sjálfvirk eftirfylgni með tölvupósti

  • Sjálvirk eftirfylgni við skráningu
    Þú getur látið kerfið senda ótakmarkaðan fjölda sjálfvirkra tölvupósta (raðtölvupóstar) til að fylgja tilteknu máli eftir yfir ákveðið tímabil eftir að notandi hefur skráð sig á tiltekinn póstlista.
  • Ítarleg tölfræði
    Þú getur látið kerfið skrá opnunartíðni og tenglasmelli í þessum raðtölvupóstum.
  • Ótakmarkaður fjöldi raðtölvupósta
    Þú getur sett upp mismunandi raðtölvupósta fyrir hvern póstlista og stillt sendingartíðnina eftir sekúndum, mínútum, klukkustundum, vikum eða mánuðum.

Skráning og afskráning

  • Skráning og afskráning með tölvupósti
    Þú getur látið notendur eða viðskiptavini skrá sig eða afskrá sig af póstlistum með því að senda einfaldan tölvupóst á tiltekið netfang, og frettabref.is sér um restina.

Öryggi

  • Manneskjupróf
    Frettabref.is býður upp á CAPTCHA manneskjupróf (mynd með táknum sem þarf að skrifa í sérstakan reit) á innskráningarsíðum til þess að koma í veg fyrir aðgang botta og hakkara.

 Viðhald á gagnagrunni

  • Viðhald og afritataka á gagnagrunni
    Á frettabref.is er sérstakt stjórnborð þar sem þú getur uppfært og afritað gagnnagrunninn þinn  hvenær sem er. Auk þess er tekið afrit af öllum gagnagrunnum þrisvar á dag og það geymt í töluverðan tíma.

 

 

Prufuaðgangur

Fáðu ókeypis prufuaðgang í 3 vikur.

Smelltu hér til að sækja um.

20 bækur gefins!

Taktu þátt í léttri könnun og fáðu gefins yfir 20 stafrænar bækur um rafræna markaðssetningu.

Sjá bókalista og könnun.

Fréttabréf.is
Egilsmóa 4
270 Mosfellsbær
Sími: 691 2225
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.