Þjónusta | Þjónusta |
|
|
|
|
Til að byrja með sjáum við um að setja upp fyrsta póstlistann fyrir þig, gerum fyrsta fréttabréfið klárt til útsendingar, aðstoðum þig við að setja inn netfangalista og höfum umsjón með útsendingu fyrsta fréttabréfsins. Þú sendir okkur einfaldlega texta og myndir sem við vinnum fyrir þig og setjum í fréttabréfið. Þú færð aðgang að læstu svæði þar sem þú getur skoðað og prentað út skýrslur yfir tölfræði útsendingarinnar. Eftir útsendingu fyrsta fréttabréfsins tekur umsjónarmaður póstlistanna við kerfinu þar sem hann getur sjálfur sett upp ótakmarkaða póstlista, hannað fréttabréfin, skilgreint og skipulagt herferðir, sent fréttabréfin á viðeigandi lesendahópa og fylgst með árangrinum. Við kennum umsjónarmanni á kerfið, hann fær aðgang að ítarlegu kennsluefni og getur leitað til okkar hvenær sem er til að fá aðstoð ef þarf. Einnig erum við með neyðarnúmer ef þörf er á því. |
Taktu þátt í léttri könnun og fáðu gefins yfir 20 stafrænar bækur um rafræna markaðssetningu. Fréttabréf.is
Egilsmóa 4
270 Mosfellsbær
Sími: 691 2225
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.